Gaman er fyrir hin góðu börn
að ganga med pabba út að tjörn
sjá þar lítinn bra-bra-bra
og börnin skemmta sér, ha-ha-ha

Gefa honum brauð að bíta í
börnin hafa svo gaman af því
saddur verður bra-bra-bra
og börnin skemmta sér, ha-ha-ha

Úti í hólma á sér ból
ungunum sínum veitir skjól
allir eiga þeir sömu sæng
sofa undir mömmu væng

Fara að reyna að fleyta sér
fús að kenna þeim, mamma er
hún er þeirra víta vörn
verndar og fæðir sín litlu börn

Eitt sinn lítinn unga ég sá
auminginn villtist mömmu frá
sífellt í hring hann synti þar
og sá hana ekki neins staðar

Mamma vissi vel um það
og á vængjunum sínum kom þar að
ósköp glaður vard unginn thá
og öruggur sinni mömmu hjá

Ef að tjörnin okkar frys
uti er gaman að sleða á ís
þá er oftast úti svalt
og aumingja bra-bra þá svo kalt

Med kalda fætur á köldum ís,
króknar stundum, deyr og frys
börnin harma bra-bra sinn
og búinn er söguþátturinn

Traduction disponible sur le forum
Se connecter

Börnin Við Tjörnina

Chanson pour enfant écrite dans les années 50 par Jenni Jónsson (1906-1982) et interprétée notamment par la chanteuse islandaise Ingibjörg Þorbergs.

Discographie

Collaborateurs

  • Tríó Guðmundar Ingólfssonar